Skip to product information
Heilinn og hamingjan; Ársaðgangur að vefnámskeiði

Sérstakt kynningarverð í takmarkaðan tíma

Á námskeiðinu er útskýrt hvernig heilinn og taugakerfið starfa í streituástandi og í jafnvægi samkvæmt nýjustu þekkingu taugavísindanna. Við skoðum hvernig hægt er að rjúfa gömul mynstur og takmarkandi hugafar með tiltölulega einföldum aðferðum sem með mildi og þolinmæði geta haft djúpstæð áhrif.

Taugakerfið okkar mótast meðal annars  í gegnum reynslu og upplifun í uppvexti. Það hefur mikil áhrif á hvernig við bregðumst við aðstæðum, hvernig við eigum samskipti við aðra og hvernig við tölum við okkur sjálf. Erfið reynsla, áföll eða langvarandi streituvaldandi aðstæður geta haldið taugakerfinu í viðvarandi streituástandi með tilheyrandi vanlíðan og ýmsum erfiðum einkennum. Í því ástandi eru hugsanir okkar um okkur sjálf, aðra og umheiminn ekki alltaf áreiðanleg endurspeglun raunveruleikans.

Góðu fréttirnar eru þær að við getum lært að róa og styrkja taugakerfið. Með markvissum æfingum er hægt að draga úr langvinnri streitu og stuðla að auknu jafnvægi, betri líðan og meiri lífsgæðum. 

Námskeiðiðinu er skipt upp í sjö stutta hluta og er sambland af fræðslu og hagnýtum æfingum. Þú getur því hlustað í þínum takti hvenær sem þér hentar. Hægt er að hlaða niður öllum glærum sem sýndar eru og prenta út eða eiga í tölvunni.

Með námskeiðinu fylgir Jóga nidra hugleiðsla sem þú hefur aðgang að í eitt ár , rétt eins og námskeiðinu sjálfu. 

Athugið: Þeir sem greinst hafa með krabbamein geta sótt námskeiðið gjaldfrjálst hjá Krabbameinsfélaginu

🌿Sértilboð fyrir þátttakendur: Kaupir þú námskeiðið Heilinn og hamingjan býðst þér 20% afsláttur af Hvíldarpakkanum með Jóga nidra, hugleiðslum og svefnslökun. Sendu tölvupóst á hvild@hvild.is eftir kaupin og fáðu sendan afsláttarkóða hafir þú áhuga á aðgangi að pakkanum 🌿

You may also like